Vextir sjóðfélagalána hækka um 0,2% í 3,7%

28. maí 2009

Stjórn Lífeyrissjóðs verkfræðinga ákvað á stjórnarfundi þann 19. maí 2009 að hækka vexti á sjóðfélagalánum úr 3,5% í 3,7% ársvexti frá og með 1. júlí 2009. Hefur tilkynning þar að lútandi, dagsett 29. maí 2009, verið send til allra lántakenda sem eru með íslenskt lögheimili, svo og þeirra sem hafa tilkynnt sjóðnum um heimilisfang erlendis. Heimild til vaxtahækkunarinnar er að finna í texta skuldabréfanna. Ef lántakendur sætta sig ekki við hækkunina er þeim heimilt að greiða lánið upp án sérstaks kostnaðar innan 30 daga frá dagsetningu tilkynningarinnar.

Fyrirhuguð vaxtahækkun var kynnt í fréttabréfi sjóðsins sem sent var sjóðfélögum í lok mars 2009. Þar sagði:

Stjórn sjóðsins kynnir á aðalfundinum hug­myndir um að hækka vexti sjóðfélaga­lánum um 0,2% í 3,7%. Rekstrarkostnaður sjóðsins er um 0,2% af eignum og telur stjórnin sann­gjarnt að lánin standi undir kostnaði og skerði ekki lífeyrisréttindaöflun sem samkvæmt lögum er miðuð við 3,5% raunávöxtun.”

Vaxtahækkunin var einnig kynnt á aðalfundinum og hreyfðu sjóðfélagar ekki andmælum.